...og nå er det jul igjen!
jólin eru að koma og mikið hlakka ég til! Til að komast almennilega í jólaskapið lögðumst við Maren og Milla í piparkökubakstur á laugardaginn... hin hefðbundnu munstur voru notuð...hjörtu, bjöllur, karlar, kerlingar, jólatré, englar... en einnig fengu elgir, hestar, mikkar og andrésfætur og líta dagsins ljós. Að sjálfsögðu var bakað piparkökuhús en eitthvað minna sást nú í sjálft húsið þegar búið var að skreyta það...hrúga með smartís, glassús og hlaupkörlum hefði verið nærra lagi. En það var fallegt!
Ég yfirgaf þó piparkökusamkvæmið snemma því mín beið annað og öðruvísi samkvæmi..."årsfest" á Kvarteret. Vaktin mín hittist fyrst heima hjá Ivönu og Anne Marthe. Þar dreyptum við á kampavíninu sem við höfðum unnið fyrir tips-keppnina og fórum í strætóferð, brrr! Sumir fóru í margar strætóferðir og voru því ansi skrautlegir þegar við komum á Kvarteret...ekki einir um það svosem. Dansað var framm á rauða nótt og úti er ævintýri...
Í dag skilaði ég svo þurrustu og leiðinlegustu ritgerð sem ég hef nokkurn tíman skrifað. En hvað er annað hægt þegar efnið er heimspekileg rökfærluritgerð um flata skatta. Æ og ó! En til að bæta mér upp kvölina sem þessi ritgerð olli sálartetrinu mínu bjuggum við Maren til hvítan og rauðan og grænan glassúr og skreyttum (klíndum) piparkökur. Nú eru kökurnar óætar því við tímum ekki að borða þær...og auk þess er glassúr frekar ólystugur. Piparkökurnar urðu því að jólaskrauti og prýða nú eldhúsgluggann í Neumannsgate 26...
fleiri myndir frá myndarlegheitunum er komnar inn á flickr